Tuesday 13 March 2007
Það er Rjómablíða
 
 
Það fyrirfinnst ekki gáfaðari maður á landinu en ég. Ég er það gáfaður að jafnvel áður en ég vakna á morgnana er ég oftast búinn að bursta tennurnar, klæða mig og finna út leið til að lækka tekjuskattinn í landinu um 12,74% án þess að níðast á einum einasta ellilífeyrisþega eða öryrkja.Sem merki um þessar gáfur þá datt mér í hug að það væri gott að taka smá slökunar-rúnt eftir vinnu nóttina sem tré, útidyrahurðir ásamt nokkrum mjög svo undrandi garðálfum fuku um allt hérna innanbæjar (einn garðálfanna var að vísu ekki vitund undrandi heldur virkilega ánægður og hrópaði í sífellu ‘Ég vissi það!’)**....

Ég var semsagt að keyra um í vindstyrk sem löngu ellidautt fólk hefði ekki einusinni munað eftir að hefði mælst áður, væri það á lífi í dag. Þegar ein vindhviðan skall á bílnum mínum vildi svo óheppilega til að undir honum var ekkert annað en vatn í föstu formi, en við þannig aðstæður hefur vatn tilhneigingu til að vera hættulega hált. Bíllinn minn hætti að færast áfram og byrjaði í staðinn að færast til hliðar í áttina að Subaru Justy sem stóð skammt frá. Af hverju bíllinn minn var svona staðráðinn í að fjúka á Subaruinn veit ég ekki, sennilegasta skýringin er að það var ekkert annað nálægt til að fjúka á. Það gæti líka verið að þeir hafi bara viljað skiptast á Jólasmáköku uppskriftum. Það kom svipur á mig ekki ólíkt því að endajaxlarnir í neðri góminum á mér væru að reyna að naga framtennurnar í þeim efri á meðan augabrúninrnar á mér sigu niður að kinnbeinum. (þessi svipur hefur áður orðið til þess að allavega ein manneskja, sem er mér mjög kær, sagði ‘Ojjj Siggi, þú ert ógeðslegur! Haltu áfram!’, þrjú börn hlupu grátandi heim, fengu martraðir marga mánði á eftir & urðu aldrei söm og kona á fimmtugsaldri hætti endanlega að trúa á að í lífinu fyndist nokkuð fallegt). Gretturnar gerðu lítið til að koma í veg fyrir árekstur, en hinsvegar náði ég að snúa stýrinu fram og til baka, tippla nett á viðeigandi pedala og renna þannig rétt framhjá Subaru-inum. Loks þegar bíllinn stöðvaðist á svell-fríum bletti skemmt frá sat ég flissandi af geðshræringu og byrjaði að pæla í því hvort þeir sem hafa haldið því fram að ég sé alls ekki gáfður heldur einungis allt of þreyttur á morgnana hafi rétt fyrir sér. Kannski er eitthvað til í þeim rökum sem þetta lið kemur með, að það sé alls ekki eðlilegt að mæta í vinnuna á morgnana með fótsveppasmyrsl í munnvikunum og JBS nærbuxurnar sínar um hálsinn.
**Þó að flestir viti það ekki eru garðálfar virkilega undarlegar verur. Flestir þeirra, sem lifa eðlilegu lífi, halda að alheimurinn sé að meðaltali 900 fermetrar, afmarkaður af vel fúavörðum trégirðingum og með forljótum steinsteyptum kössum sem standa oftast ekki alveg í, en nálægt miðju alheimsins. (Nafnið sem flestir þeirra nota yfir miðju alheimsins er ‘Sólpallur’). Garðálfar hræðast fátt annað en fulla unglinga á leiðinni í bæinn og sláttuvélar, en flest dauðsföll þeirra má einmitt rekja til þessa tveggja ógna (hugmyndin okkar um Manninn með Ljáinn er í raun tekin beint frá garðálfunum, en þó í mjög svo einfaldaðri og frumstæðari mynd). Einnig óttast þeir Ragnarök, sem á þeirra máli þýðir Hrun Girðingarinnar. Þó svo að enginn garðálfur hafi nokkurntíman orðið vitni að því að sláttuvélar hafi í raun skapað annan garðálf, líta þeir á þær sem æðri og almáttugar verur. Verkfæra og áhaldaskúrar eru því heilagir staðir í þeirra augum, þar sem Sláttuvélin, Hrífan og Heilagur Bensínbrúsi halda þar til og munu þaðan koma til að dæma lifendur og brotnaða. Ástæða þess að álfarnir sem fuku út um allt voru mjög svo undrandi er eftirfarandi:(Ástæðan fyrir því að einn þeirra var ekki vitund undrandi, heldur virkilega ánægður er einnig eftirfarandi):Þrátt fyrir að vera flestir algerlega holir að innan eru þeir miklar vitsmunaverur. Heimspekingar, ljóðskáld og keramík-nuddarar úr þeirra röðum hafa skrifað margar og verulega þykkar bækur um hvað gæti mögulega verið fyrir utan garðinn. Allar þessar bækur nema ein fjalla um að þar sé gjörsamlega allt virkilega rotið. Garðálfíska/mannamáls orðabókin (prentuð, bundin inn, gyllt og gefin út í rósarunnanum fyrir utan eldhúsgluggann hjá Dittu frænku) gefur fyrir hræðilegan misskilning skýringu á hinu víðferma hugtaki ‘fyrir utan garðinn’ með aðeins einu orði. Það orð er ‘Danmörk’. Þessi færsla í orðabókinni er vatn á myllu álfs, sem kallaður er Villi Ess af vinum sínum, og skrifaði þessa einu bók sem minnst er á hér að ofan. Þar dregur hann í efa þær fullyrðingar að ‘gjörsamlega allt’ sé rotið sem er fyrir utan garðinn, heldur að það sé einungis ‘eitthvað’ rotið. Allir heimspekingarnir, ljóðskáldin og keramík-nuddararnir segja að þetta sé argasta bull, en það er einungis vegna þess að þeir eru virkilega reiðir og fröstereraðir yfir að hafa ekki fengið sannarlega ferska og nýja hugmynd sjálfir. Kenningin um að gjörsamlega allt sé rotið fyrir utan garðinn er þó í raun mjög svo lógísk, þar sem álfarnir hafa tekið eftir því að íbúar ljótu steinsteypukassana, sem standa oftast ekki alveg í, en nálægt miðju alheimsins, eyða fimm sinnum meiri tíma í að fúaverja trégirðingarnar sem umlykja garðinn en þeir eyða samanlagt í að liggja á sólpallinum, drekka þar bjór og brenna mismunandi þykkar sneðar af marineruðum kjötsneiðum. Þetta hefur orðið til þess að sú trú er útbreidd að sólpallurinn sé eini öruggi staðurinn komi einhvertíman til Hruns Girðingarinnar, þar sem hann fær venjulega eina eða tvær umferðir líka í hvert skipti sem girðingin er varin. Undrun garðálfanna yfir að sjá með eigin augum að Villi Ess hefði allan tímann haft rétt fyrir sér, en allir hinir rangt, var skammvinn, því þeir brotnuðu í þúsund mola á miðju Þórunnarstræti nokkrum sekúndum eftir að takast á loft og höfðu þar af leiðandi ekki tækifæri til að segja neinum frá því. Þessi eini sem var ekki undrandi heldur ánægður var Villi Ess.

Skrifað  Föstudagur, 22. Desember, 2006
SigReyonTuesday 13 March 2007 - 21:09:44
Read/Post Comment: 7

News Categories

This site is powered by e107, which is released under the terms of the GNU GPL License. Furthermore, all images, text and other content on this site is subject to copyright law and may not be used without permission. All rights reserved, Thorstensen Inc. MSN - londonchurchill 'at' hotmail.com / myspace.com/yergiz
Sigurður Reynir Thorstensen - SigRey - S: 862-6878
Ekki taka neitt af því sem er á síðunni alvarlega!
Render time: 0.2386 second(s); 0.0533 of that for queries. Memory Usage: 1,886kb