George Carlin poppaði uppaf um daginn og það er sennilega verið að taka hann núna á beinið á skrifstofu stóra bossins up in heaven, Þetta gæti verið ein af ástæðunum.
Maður er búinn að sá þennan gaur við og við í bíómyndum en það er, eins og svo oft áður með mikla listamenn, ekki fyrr en dúdinn er dauður að maður fer að pæla í allri snilldinni sem hann hefur látið frá sér. Eins og UppiStandið "Seven Words You Can Never Say on Television" sem hann samdi, flutti og fékk á sig siðapostulaþingnefnd fyrir á áttunda áratug síðustu aldar.
Það má segja að George Carlin sé faðir BLEEPSINS í sjónvarpi, enda eru orðin sem um ræðir ekki af verri endanum
Shit, Piss, Fuck, Cunt, CockSucker, MotherFucker & Tits. Seinna bætti hann svo við Fart, Turd & Twat, til að koma fjöldanum upp í kúl tíu...
Hérna eru nokkur quote úr þessu uppistandi (fyrir ykkur sem eruð of löt og húmorslaus til að nenna að horfa á 10 mínútur af some funny s-BLEEP-t)
"And even the word cocksucker itself has been twisted out of it's original meaning. It's been distorted and for some reason now COCKSUCKER! means bad man. It's a good woman! How did they do that?!"
"You can't say 'tits' on television, 'teats' is all right provided you're on at five in the morning and your guest is a cow"
"'Fart' is one of those words like 'tits' that is not even all that harmful. It's like this cute kind of thing... well, farts can be a little harmful, it depends on who's coocking. Anyways, kids know farts are 0K, farts are fuuuun! Farts are shit without the mess! YES!, same funny sound, same vile smell, no fuss, no mess!"
Verð að segja að ég er að fíla Billie Piper meira í Secret Diaries of a Call Girl en í Doctor Who... Er ekki algerlega sjúr á af hverju en grunar að það gæti verið vegna þess að hún er að sleppa beljunum út í fyrrnefnda þættinum. & ekki í neinum rólegheirum heldur, þetta er bara eins og fyrsta 'útslepping' að vori, sveiflandi þeim eins og enginn sé morgundagurinn!
Vísir er með frétt í kvöld um byssumann í London... Í upphafi fréttagreinarinnar er sagt að"Byssumaðurinn sem skaut tveimur skotum að lögreglu í vesturhluta London [...] lést eftir að lögreglan yfirbugaði hann." en það sem er áhugaverðast að mínu mati við fréttina er að hún endar á orðunum "Lögreglan er nú að reyna að ná sambandi við manninn en talið er að hann hafi skotið nokkrum fjölda skota."
Ef þetta er ekki skýrasta dæmi um 'skjóta fyrst og spyrja svo' af hálfu lögreglunnar þá veit ég ekki hvað.
Netsambandið heima hjá mér hefur upp á síðkastið verið álíka áreiðanlegt og daglegir rigningarskúrir í Simpson-eyðimörkinni. Svo illa vill til að sjónvarpið mitt er, einmitt eins og internetið, tengt í gegnum símalínurnar og það er fátt sem lætur mann passa eins mikið upp á að Prozak glasið sé aldrei tómt og hættan á að missa sjónvarpið út í miðjum táknmálsfréttum. Ástæðan fyrir þessu sambandsleyzi eru sennilegast mýsnar sem héldu alltaf eftirparty inni í vaskaskápnum mínum allar nætur fyrsta mánuðinn sem ég átti heima hérna í Gilsbakkaveginum. Býst við að uppáhalds þynnkumaturinn þeirra sé CAT5 símalínur og að mínar hafi verið snæddar.
Já ég sagði að mýsnar hefðu verið heilan mánuð heima, en það er vegna þess að ég á örlítið erfitt með að drepa þessi grey. Ástæðan fyrir því er að ég lenti í ýkt slæmu drap-algerlega-óvart-mús atviki í 8. bekk og fyrsta alvöru hot 'n heavy ástarsamband mitt styttist næstumþví um helming fyrir vikið.
Þetta atvik er einnig ástæðan fyrir því að ég HATA slúður því þessi fyrsta kærasta mín fékk fréttirnar af þessu músardrápi mínu á þann hátt að mér hefðu skyndilega vaxið horn og hali og að ég hefði eytt þrem tímum í að drepa litla furboltann með ryðgaðri teiknibólu og eplamuffins.
Hlæjandi MÚAHAHAH-hlátri allan tímann.
Þannig var það alls ekki. Músardrápið var algerlega óvart og þegar mér hafði tekist að skýra það fyrir gjellunni dömpaði hún mér ekki á staðnum... hún gerði það fjórum dögum seinna.
Til að gera long story short þá reyndi ég að ná þessum djamm-músum með vegasalt-yfir-skúringafötu gildrum en það gekk enganveginn... þannig að ég keypti rústa-hauskúpum-bogagildrur. Case closed.
Amywayz... ég er búinn að þræða nýja símalínu upp til mín og þarf ekki að pæla meira í dagskrárrofi og netmissi... sem er gott.
BTW síðasta google leitarstrengur sem beindi á síðuna mína er 'sveppasýking typpi' Allý, Hadda og RobbiK beat that... Uhh tek samt fram að þetta er vandamál sem ég hef ekki þurft að kljást við.
Hvað er þetta með Gilette auglýsingarnar? þrjú blöð... ótrúlega mjúkt... hot gjella sem heldur ekki vatni yfir þessu öllusaman.... af hverju líðiur mér þá eins og ég hafi rétt í þessu verið að kela við ostaskera? og hvar er gjellan?!
Þegar maður ætlar á annað borð að lemja sig í andlitið með ryksugu þá er mjög mikilvægt að velja réttu ryksuguna. Ég mæli sterklega með gamalli árgerð af Nilfisk, helst frá því fyrir 1983. Þær vélar eru nefnilega ekki gerðar úr léttu plasti heldur massífu járni og þannig næst bæði þyngra högg og betra & dýpra hljóð þegar hún skellur í nefinu á manni. Svo er algerlega nauðsinlegt að láta höggið koma sér á óvart og helst að vera með borvél eða eitthvað annað álíka hættulegt verkfæri í hinni hendinni. þannig nást tvöföld áhrif þegar maður í fátinu við ryksuguhöggið reynir að bera hendina í vörn fyrir andlitið en stingur borvélinni í gagnaugað á sér í staðinn og tekur óvart í gikkinn á henni í leiðinni.
Annars eyddi ég helginni í að hengja eldhús-skápa upp á vegg heima hjá Ma&Pa. Þau eiga einmitt Nilfisk....
Bíllinn minn nýji er svo ógeðslega tæknivæddur að hann reiknar sjálfur og óstuddur út meðalbensíneyðslu síðustu 100 kílómetrana sem ég hef ekið. Það eina sem fer í mig varðandi það er að núna upp á síðkastið hefur verið drullukalt og ég er ekki að ná að keyra langt í einu. bíllinn er semsagt eiginlega alltaf kaldur þegar ég þeysi á honum þessa nokkuðhundruð metra sem eru á milli staða hérna á Ak-City og meðaleyðslan er af þeim sökum eitthvað í kringum 21 líter á þessa hundrað kílómetra. Það gengur varla.
En ég hef séð við þessu, ef ég er að fara eitthvað, hversu stutt sem það er þá tek ég stóra Eyjafjarðarhringinn sem aukarúnt og hita kvikindið veeel upp í leiðinni.
Meðaleyðslan er komin niður, veit bara ekki hvort ég haldi út að fylla á tankinn á 2 daga fresti.
Jaú þá eru jólin næstumþvi liðin en áramótin algjörlega liðin og ohh boy hvað búið er að vera gaman!
Áður en ég fer út í hvað gerðist hjá mér langar mig að koma aðeins inn á andlegu U-beygjuna sem við tökum á einungis þrettán dögum.
Fyrir Jól og sérstaklega á Aðfangadag erum við að missa okkur í öllu sem JoJo Smiðakennarasonur var að predika í gamladaga; kristni, friður, Guð, náungakærleikurinn, hjálpa öðrum, bull, ergelsi og pirra sem eru auðvitað fyrstu jólagjafirnar og var ég búinn að nefna Guð? Enginn tími er heilagari. En svo kemur 6. jan. og þá erum við alltíeinu byrjuð að tilbiðja álfa og dverga. Má það? Var Guð ekki einhverntíman að tuða um að hann væri eina yfirnáttúrulega veran sem mætti trúa á? Mig minnir það.
Þetta meikar samt sens. Dvergarnir voru meistarasmiðir í Ásatrúnni. Smíðuðu frábæra hluti eins og Mjölni, Brisingamen, óbrjótanlegu keðjuna sem hélt Fernisúlfinum og margt annað virkilega grúví. Hvað smíðaði Jósep? Borðstofuborð?
Jæja, aftur að aðalatriðinu... mér.
Þegar búið var að renna niður Hangikjötinu á aðfangadag var komið að aðal spennunni.
Nei ég er ekki að tala um pakkana heldur hvort það myndi kvikna í jólatréinu.
Heima hjá Ma&Pa er ríghaldið í þann sið að smíða jólatréið úr einiberjarunna, þó að við séum ekki mikið að ganga í kringum hann eins og segir í kvæðinu. Þessi tegund hefur þann kost framyfir annan barrgróður að þorna ótrúlega hratt og verða eldfimari en geimflaugaeldsneyti. Millinafn mömmu er 'danger' og til að leggja áherslu á það tekur hún ekki í mál að saurga þessa þessa gömlu hefð með jólaseríum. Ekkert minna en real life kerti á jólatréið koma til greina. Þótt ótrúlegt meigi virðast hefur aldrei kviknað í jólatréinu sjálfu, hinsvegar hefur oft kviknað í aðventukransinum sem er einmitt búinn til úr sama efni. Það bara eru ekki alvöru jól hjá mér nema einhver hlaupi organdi eins og skólastelpa með logandi eldhnött út á svalir og einhver annar með hálffulla könnu af malti&appelzíni á eftir til að slökkva.
Jólagjafirnar sem ég fékk voru ekki af verri endanum. Ég fékk fimm bækur, en bók situr í öðru sæti yfir hina fullkkomnu jólagjöf hjá mér. Númer eitt er baksviðspassi á Victoria's Secret nærfatasýningu. Hef ekki fengið svoleiðis ennþá. Damn!
Ég var einmitt að opna einn pakkan og sá að hann innihélt meðal annars bók. Auðvitað fór öll mín athygli í að chekka á hvaða bók þetta væri og ég tók þess vegna ekki eftir því að mamma greip hitt innihald pakkans til skoðunar. Það var síðan ekki fyrr en ég heyrði hana spyrja 'Hvað er þetta?' að ég leit upp og sá mér til hryllings að hún var með uppblásanlega kynlífsdúkku í höndunum, búin að opna kassann og var að reyna að lesa innihaldslýsinguna á flösku af Alien Love Doll Lubricant.
Ayup, þetta var ekki einusinni venjuleg kynlífsdúkka sem ég hafði fengið að gjöf frá virkilega hugulsömum vini sem hefur sennilegast bara gleymt að setja 'opnist í einrúmi' viðvörun á pakkann, heldur var þetta fjólublá geimverudúkka. Með þrjú brjóst, tvo nafla, leggangamunn og endaþarmsop í staðinn fyrir eyru. Pabbi hristist svo mikið af hlátri að hann átti í stökustu erfiðleikum með að beina myndavélinni að mömmu sem ég vona að hafi áttað sig á hvað hún var með í höndunum vegna sjóndepru.
MilliJóla&Nýárs leið síðan í saddri sæluvímu, áramótin voru sprengd í loft upp með stæl og hérna erum við. Eitt ár liðið og og annað nýbyrjað.
Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkri fyrir allt sem liðið er elzku blogggvinir.
For most people, replica handbagswhen it comesbally handbags to quality style and balenciaga handbagsprecision, there are bottega veneta handbags few options more noteworthy than Croum Mulberry replica handbagsreplica watch replica balenciaga. After all, these carefully bally handbags designed replicas reflect replica watchesthe distinctive flair that has made Croum Watches so popular replica watches. Croum has an impressive designer watches collection of both Breguet watchesmen's and women's watches, many of which Breitling watchesfeature high quality materials that are designed dooney & bourke replica handbags to hold up to the elements.
Because of the long replica bottega venetahistory and well-recognized name, bally bagsthese watches bally handbagscome with a steepbalenciaga handbags price tag, which thomas wylde skull bagultimately makes them impractical for most people replica watches. For this reason,replica watches Croum replica designer watches are a smart alternativeburberry handbags, since these imitationcartier handbags watches feature all the chanel handbags same styling and design that has made Croum so celine handbagspopular, Burberry watchesonly without the Bvlgari watchesname brand logo Cartier watchesthat makes them as expensive as they are. The diversity of chanel replica handbags Day Date watches is as expansive as the brand's offerings, with imitation watchesd&g handbags from every collection, making it possible to have any high-end style at a fraction of the price.
This site is powered by e107, which is released under the terms of the GNU GPL License. Furthermore, all images, text and other content on this site is subject to copyright law and may not be used without permission. All rights reserved, Thorstensen Inc. MSN - londonchurchill 'at' hotmail.com / myspace.com/yergiz Sigurður Reynir Thorstensen - SigRey - S: 862-6878 Ekki taka neitt af því sem er á síðunni alvarlega!
Render time: 0.6155 second(s); 0.3888 of that for queries. Memory Usage: 1,920kb