You want WHAT on the fucking ceiling?!?!  Michaelangelo 1508

Monday 08 December 2008
Amazon
Ég hef lítið skrifað hérna um 'ástandið' í þjóðfélaginu.  Aðallega vegna þess að nóg er af þeim umræðum annarstaðar og líka vegna þess að þegar ég heyri K-orðið fæ ég meiri hroll en þann sem ég fæ á hverju ári þegar Gay-Pride skrúðgangan í San Fransico gengur yfir tilvonandi gröf mína.

Að sjálfsögðu hef ég áhyggjur af 'ástandinu' og þess vegna ákvað ég að gera eitthvaðí því.  Ég fór á amazon.co.uk og pantaði mér bókina 'Overcoming Depression for Dummies'.  Hún kostaði aðeins 9,95 pund sem gerir um 10úzt kall með sendingarkostnaði, tolli, vaski, tollafgreiðslugjaldi og fáranlega óhagstæðu gengi á erlendum kreditkortafærslum.

Auðvitað hefði ég átt að panta mér líka 'Vocabulary for Dummies' vegna þess að depression þýðir ekki kreppa (hrollur).  Orðið sem ég var að leita að er recession

In short, í verstu lífsgæðalægð sem þetta land hefur litið síðan í harðindum sem oft eru kennd eru við mömmur, ákvað ég að skeina mér á 10úzt kalli með því að eyða honum í bók sem ég hef minna en ekkert með að gera.  Vill einhver slá mig! Þegar maður uppgötvar svona heimsku hjá sjálfum sér verður maður bara þunglyn....   

...uhhh, Heyyy!!
SigReyonMonday 08 December 2008 - 00:08:44
Read/Post Comment: 32

Thursday 04 December 2008
Grumpy
Ég legg til að herbergi verði tekið frá í helvíti fyrir þá sem 'dyra' bíla og láta ekki vita.  Held að það sé eitt laust á milli þess sem Adolf Hitler býr í núna og þess sem er frátekið fyirr George Lukas þegar hann deyr.  Maðurinn bara hlýtur að fara niður eftir að hafa 'fætt' Jar-Jar Binks.

Annars þarf þetta pláss svossum ekkert að vera neitt stórt, svo lengi sem það rúmar þann þjóðfélagsenda© sem dyraði bílinn minn.
SigReyonThursday 04 December 2008 - 22:41:24
Read/Post Comment: 22

Tuesday 02 December 2008
RistruFlanir
Mér finnst spam-mail sendingar leiðinlegar.  Aðallega vegna þess að ég hef sjaldnast hvorki not fyrir, né áhuga á því sem verið er að bjóða í þeim.
Að vísu fékk ég núna áðan póst frá frönskum gaur sem heitir Neria Hillanbrandt  þar sem hann var að reyna að pranga Viagra eða einhverju öðru samheitalyfi inn á mig.

I have One wife and twoo mistresses... I can fu..  [make love to, (innsk. höfundar)] them all several times per day!
YOU CAN TOO: CLICK HERE!


Awesome! Það veit sá sem allt veit að mig langar í Viagra, sumar stelpur hafa jafnvel gengið svo langt að segja að ég þurfi virkilega á því að halda.  En er ekki einhver önnur leið til þess að nálgast Viagra?  Einhver leið sem felur ekki í sér að ég þurfi að fara til Frakklands og rí... [njóta ásta með, (mamma les stundum bloggið mitt)] bæði Frú Hillanbrandt og einhverjum tvem öðrum kjellum sem ég hef aldrei hitt og veit ekki einusinni hvað heita.  Mér finnst það bara aðeins of mikil fyrirhöfn.
SigReyonTuesday 02 December 2008 - 20:55:06
Read/Post Comment: 22

Wednesday 12 November 2008
Exitiabilis Diarrhoea
Þegar ég var í skólanum (fyrir um 100 árum) fannst mér ömurlegt þetta latínu snobb í nafngiftum þegar kom að líffærum, vöðvum, tegundaheitum og öðrum hlutum sem voru greinilega of fínir til að bera íslensk nöfn.  Ég skildi þetta aldrei, af hverju mátti ekki kalla Hettumáf Hettumáf, þetta er bloody máfur sem er með fooqing svarta hettu á hausnum.  Easy as can be.  Verð samt að játa að Böðlamáfur hefði verið way cooler (vegna þess að böðlar eru líka með hettu og... ahh þið náið pointinu).  En nei, ef manni datt í hug að gera þverhandarþykka líffræðiritgerð um kvikindið þá þurfti að vera á hreinu að hún væri um Larus ridibundus, ef ekki var alveg eins líklegt að einn heill tíundi af einkuninni yrði dreginn frá.


Um daginn rann þó upp fyrir mér ljós varðandi hagnýtt notagildi fræðiheita.  Ég var að horfa á Discovery og þar inni í þáttunum eru norsk auglýsingahlé. Lesinn texti í einni auglýsingunni var svona:

   "Hvis du har diaré har du nu et valg om du bli'r hjemme hele dagen eller ta'r Imodium Comp"

Á íslensku væri þessi texti einhvernvegin svona:

   "Ef þú ert með drullu hefur þú nú val hvort þú eyðir deginum sitjandi *pun intended* heima eða færð þér Imodium Comp"

Ég skil þetta núna.  Latnesk eða forn-grísk fræðiheiti voru fundin upp til þess að lyfjarisarnir gætu blygðunarlaust auglýst drullu-lyf.
SigReyonWednesday 12 November 2008 - 00:46:30
Read/Post Comment: 31

Friday 07 November 2008
Ber að ofan, anyone?
Í dag gerði ég hlut sem ég hef aldrei gert áður... allavega ekki á íslandi nema þá måske á sundlaugarsvæði.   Ég fór út úr húsi ekki í neinum bol.  Ég verð að játa að ég fór jafnvel í bónus svona til fara, það var bara eitthvað svo frískandi og frjálst. 

Það undarlega við þetta er að það var ekkert bent á mig og flissað, en það er sennilega bara vegna þess að þó ég hafi gleymt bolnum þá gleymdi ég ekki peysunni.
SigReyonFriday 07 November 2008 - 23:10:56
Read/Post Comment: 33

Wednesday 05 November 2008
Efnahagsástandið og stjórnmál
Eff-u-sé-ká hvað þetta endalausa tuð um Evruna er hressandi.  Ég er með lausnina, í staðinn fyrir að taka upp Evru látum við öll hin evrópulöndin taka upp Krónuna!  Mana fólk til að finna rök gegn þessari hugmynd....

Hverju sem því líður þarf ég ekki að örvænta.  Ég hef aðgang að örbylgjuofni sem getur gert undraverða hluti.  Það er nefnilega þannig (ýtir nörragleraugunum upp nefið) að vatn undir þrýstingi sýður við mun hærra hitastig en vatn sem er bara að chilla í potti á eldavél og þessi njúkari virðist vera þeim hæfileikum gæddur að ná hitanum í vatninu vel yfir 100 gráðurnar án þess að það sjóði.  Stundum þegar ég er að reyna að sjóða vatn í þriggja mínútna núðlurnar mínar gerist ekkert...    Ofninn hummar og suðar í rólegheitum mínútu eftir mínútu á meðan ég stend glápandi rangeygður inn, svangur, hummandi og raulandi í órólegheitum.

Í fyrsta skiptið sem þetta gerðist missti ég þolinmæðina eftir 6 mínútur og slökkti á græjunni, opnaði hurðina, tók glasið út og þegar ég var kominn með það í það sem undir öllum venjulegum kringumstæðum ætti að teljast örugg fjarlægð frá andlitinu á mér sauð vatnið.  Ég er ekkert að tala um að það hafi bobblað í rólegheitunum heldur fór mest allt af þessum fjórum desilítrum úr því að vera á vökvaformi yfir í að vera á gas formi á innan við sekúndu. 

Ég hef alltaf haldið því fram að ég sé fés-fríður maður og vatnsgufunni hefur þótt það líka.  Allavega var það að andlitinu sem hún stefndi þegar hún yfirgaf glasið og ef ekki hefði verið fyrir ninja-style viðbrögð mín væri ég alls ekki eins fallegur lengur.  Restin af vatninu, það sem ekki sauð, skvettist að vísu yfir puttana á mér sem litu út eins og rauð BratWürst með blöðrur næstu daga.

Næsta skipti sem þetta gerðist var ég svo forsjáll að pota í glasið með þriggja metra langri stöng áður en ég hætti mér nær, enda eins gott því aftur varð ég vitni að gosi sem hefði sent Geysi grátandi heim af skömm....    ofninn var allavega hreinn að innan eftir það.

Nú er einungis eftir að finna leið til að græða á þessu.  Ég gæti selt hann fyrir millijón bökks til stjórnvalda USA til að nota sem grimmi- og óvenjulega pyntingaraðferð á grunlausum (og svöngum) vistmönnum í Guantanamo en þar sem Obama verður næsti forseti þar býst ég sterklega við að þeim sumarbúðum verði lokað innan skamms.
SigReyonWednesday 05 November 2008 - 19:37:13
Read/Post Comment: 27

Thursday 23 October 2008
Hood Ornament
Dúddúrú....     Það er gaman frá því að segja að ég var næstum því búinn að gera miðaldra kellingu að húddskrauti á múltímilljónkróna bílnum mínum (hann er á erlendu láni).  sem betur fer tókst mér að trampa á bremsurnar áður en hrukkótt andlitið á henni og stífbónað húddið mitt kynntust betur en góðu hófi gengir. 

Þetta gerðist þannig að ég var að keyra í mesta sakleysi þegar hún gengur út á götuna fyrir framan mig, ég bremsa með ískri og látum, hún tekur þá fyrst eftir mér koma aðvífandi og skellir sér í ógnvekjandi karatestellingu fyrir framan bílinn. 

Hvað í spjótkastandi andskotanum á það að þýða?!

Ég get vottað það að þó hún væri með CERN-framleitt svartholsbelti í karate þá þýðir lítið að hóta bílum ofbeldi til að þeir stoppi fyrr.
Eða hvað? Ég náði allavega að stoppa með rykk, var hnakkaspiksbitchslappaður af hálftómri kókflösku sem tók flugið af pallinum við afturskottsgluggann og þurfti smá tíma til að kyngja hjartanu, lungum og lifur aftur og ganga úr skugga um að þessi líffæri væru öll á réttum stað eftir sjokkið.  Svo kíkti ég út um framrúðuna...  hálfu hænufeti fyrir framan bílinn stóð kellingin ennþá. Reið.

Já hún var reið við mig takk kærlega!  Augnaráðið sem ég fékk hefði brætt fimm tonn af Ljóma Smjörlíki, eða gert fínasta skautasvell úr Bláa Lóninu, allt eftir því hvernig þú vilt líta á málið.  Fínt, ef hún vill halda því fram að ég eigi að skammast mín fyrir að hún labbi eins og hálfviti úti á miðja götu fjarri öllum gangbrautum er mér alveg sama.   Ég samlæsti samt dyrunum á bílnum, það hefði farið alveg með egóið að vera laminn í kássu af hálfsjötugri kellingar beyglu.  (Nei honest, ég er ekkert sár).
SigReyonThursday 23 October 2008 - 19:43:44
Read/Post Comment: 39

Monday 22 September 2008
We get the nuclear warhead and we hold the world ransom for... ONE MILLION DOLLARS!
Um helgina var ég að elta rollur.

Und nein, þetta er ekki 'shauvenistic pig' aðferð mín til að segja að ég hafi skellt mér í bæinn til að hözla....   

Betur útskýrður sannleikurinn er sá að ég fór í sveitina og stóð uppi á fjalli í organdi roki, með hornös í hagléli að skima eftir kindum.  Sem er að sjálfsögðu mín uppáhalds iðja.

Eða væri kannski mitt uppáhald, ef kindur væru ekki annaðhvort evil geniuses eða heimskari en ostaskeri.  Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvort, þó ég sé farinn að hallast að þessu fyrrnefnda.

Málið er að þegar ég var kominn upp í fjall, þangað sem ég átti að vera, sá ég fjóra tröllskessu-túrtappa á stað sem þeir áttu alls ekki að vera.  Kindurnar voru semsagt töluvert ofar í fjallinu, í hlíðum gils sem voru brattari en stiginn heima hjá mér.  Eina lausnin á stöðunni var að ganga einn eða tvo kílómetra upp eftir gilinu, á köflum ofan í ánni upp að rasskinnum, til að komast uppfyrir kindurnar svo ég myndi ekki missa þær ennþá lengra í burtu.

Þó ég hefði verið klæddur nunnubúning gargandi 'The Hills are Alive..... et cetera !!' og þær brjálaðir aðdáendur söngleikja sem gerast í Austurríki hefðu þær sennilega ekki getað fylgst með mér með meiri áhuga en þær gerðu á meðan ég klöngraðist upp gilsbotninn, án þess þó að hreyfa sig.  Þegar ég var búinn að vaða nógu hátt upp gilið breytti ég um stefnu, hóf að klífa nær þverhníptan bakkan og missti sjónar af þeim. 

Ég get ímyndað mér að þær hafi byrjað að hlæja geðsýkislega  og dregið hárlausa 'Dr. Evil Ketti' út úr rassgatinu á sér um leið og ég hvarf bak við hól því þegar ég náði loksins að skríða móðari en lungnaþembusjúklingur sem er orðinn of seinn í kirkjugarðinn á þann stað sem þær voru áður, voru þær horfnar.

Búnar að fela sig. 

Samantekið ráð hjá þeim einungis til að pissa mig off er ég viss um...    Bloody Sheep.
SigReyonMonday 22 September 2008 - 21:42:42
Read/Post Comment: 31

Thursday 11 September 2008
Af Hverju eru Fyrirsætur ekki Feitari?
Fyrst ég er á annað borð byrjaður að tala um Írland....

Írar eru fyndnir, eða allavega; þeir tala fyndið.  Ég þurfti að hafa mig allan við til að skilja þessa snillinga.

Þeir hafa greinilega aldrei fattað hljóðið sem við viljum kalla 'þ', eða 'th' eins og það er skrifað á þeirra tungumáli.  Þrjátíu-og-þrjá bera þeir til dæmis fram sem 'toirty-turee'.  Í beinu framhaldi af þessum skemmtilega fræðslu-gullmola um írskan framburð ætla ég að segja frá því að á tónleikasvæðinu var seldur matur sem maður gat keypt.  Það er að segja ef maður var ekki mikið á móti því að standa í biðröð sem hefði sennilega náð til tunglsins og 1 á móti einhverju heilu margfeldi af pí aftur til baka.  Ég var töluvert á móti því, en samt hungraðari en hæna á fengtíma.

Einhverstaðar hafði ég nú samt heyrt að ofurfyrirsæturnar sem eru svo mjóar að þær geta farið í feluleik í vöruskemmu sem inniheldur ekkert annað en tvö kústsköft halda sér þannig með því að reykja.  Pointið er þá sennilega að reykingarnar slái á svengdartilfinningu.

Þar sem ég átti nú ekki neitt svoleiðis pikkaði ég í öxlina á mökkandi gaur sem stóð rétt hjá og spurði hvort ég gæti ekki betlað sígarettu.  Það var nú minnsta málið og hann rétti mér eina. Ég efaðist um að ég höndlaði eitthvað annað en háfjallaloft og spurði 'Are those menthol?'.

'Ehh?' svaraði hann 'Men...? Noo boy-o, boot tueese 'ere are tuotally mental' og rétti mér aðra sem leit út fyrir að vera heimatilbúin.

Hún virkaði ekki for stinkin' shit, vegna þess að eftir að hafa reykt hana hætti ég að vera svangur og byrjaði að vera viðbjóðslega-geðveikt svangur... og glaður, sem ég skil ekki alveg hvernig getur farið saman.
SigReyonThursday 11 September 2008 - 22:59:22
Read/Post Comment: 44

Saturday 30 August 2008
Írskar pickup línur
Þar-þarsíðasta sunnudagsmorgun pakkaði ég 8x4 handakrikasvitalyktareyðinum mínum ásamt öðrum völdum hlutum ofan í tösku og fór síðan í vinnuna. En það er ekki allt.

Eftir vinnu, eða nákvæmlega 78 mínútur yfir 11 eftir hádegi lagði ég af stað keyrandi út á Keflavíkurflugvöll. Þar hoppaði ég um sjöleytið fyrir hádegi upp í rússneska flugvél með rússneskri áhöfn sem ÍslandExpress hafði leigt undir rassgatið á mér til að koma því og restinni af mér til Kaupmannahafnar. Ég hef gaman af Kaupmannahöfn, ég bjó þar þegar ég var wee tittur og þessvegna fór ég beint að sofa eftir að ég var kominn á B&B-ið mitt og svaf allan daginn. Næsta dag rölti ég um Strikið, skoðaði dyrnar að gamla heimilinu, drakk smá bjór og moon-aði framan í nokkra götulistamenn.

Miðvikudagurinn var svo dagurinn sem allt umstangið höndlaði um. Tónleikar með TENACOUS D og METALLICA. Ég reif mig upp kl 6 með smá hvíta froðu í munnvikjunum eftir alla bjórana kvöldið áður og nett sólbrunninn rass (það eru margir götulistamenn á Stirkinu) og kom mér út á Kastrup Lufthavn. Sex tímum seinna sagði ég 'Mange tak, ha' en god dag!' við leigubílstjóra sem horfði á mig eins og ég væri með nett snert af mongó, enda var hann að enda við að keyra mig inn í miðbæ Dublin.

Eins og í Tyrkneska baðinu um árið rakst ég lauslega á mjög svo huggulega stúlku þarna.  Það var á tónleikunum og við gjóuðum augunum brosandi að hvoru öðru í dágóða stund á meðan rótarar Metallica strekktu trommuskinn og tjúnuðu gítara.  Mig langaði til að segja eitthvað ótrúlega hip, kúl og fyndið til að brjóta ísinn.  Þegar ég var loksins búinn að möndla saman setningu sem hefði án alls vafa orðið til þess að hún vildi ekkert frekar en að eignast með mér drop dead gordjöz börn (ef þau hefðu erft útlit móðurinnar) byrjaði bandið að spila og allt fór til helvítis.  40.000 manns róku upp á því að hoppa, vefa höndunum upp í loftið eins og þeim væri einfaldlega slétt sama um allt og á sama tíma voru allir að reyna að troðast nær sviðinu. 

Fyrstu tvö lögin gerði ég lítið annað en að berjast við að standa í lappirnar og anda, því þrýstingurinn frá mannfjöldanum var svo mikill að ég hefði allt eins getað verið að kela við 15 metra langa sterabryðjandi anaconda í Amazon regnskóginum, fyrir utan auðvitað að slangan hefði sennilega ekki getað spilað og sungið fyrir mig 'For Whom the Bell Tolls' á meðan hún murkaði úr mér líftóruna. Það var eini ljósi punkturinn sem ég sá við aðstæðurnar.

0K, ekki eini ljósi punkturinn, því í látunum lenti stúlkan í fanginu á mér og ég þurfti að halda henni á floti í smá stund.  Á þessum tímapunkti hélt ég að ég væri algerlega 'in' en hlutirnir ganga sjaldnast eins fullkomlega upp og í bíómyndunum.  Þetta var álíka dæmi og með 'klósettstelpuna' hérna í vinnunni fyrir nokkrum árum, nema í þetta skiptið var það ekki ég sem sagði eitthvað óviðeigandi,  því þegar lagið klárast og við náum loksins andanum snýr hún sér að mér, glottir glettnislega og segir

'Treally stinks 'ere!

.....

IT

REALLY

STINKS

HERE

!


Hvað ætli hún hafi verið lengi að upphuxa þessa pickup-línu, vegna þess að miðað við það sem ég ætlaði að segja þá sö-hökkaði hún.  Smá séns að þarna hafi verið mismunandi menningar misskilningur á feriðinni, að Írum finnist ekkert eins hot og að tala um illa þefjandi hluti.... en ég efa það samt.

Áður en mér tókst að komast að því hvort hún átti við mig eða bjórmettaða hálm-og-leðju stöppuna sem við stóðum í upp að öklum byrjaði næsta lag, ég fékk fljúgandi rass-pappírs rúllu í andlitið, loðinn eilífðar-rokkara olnboga í hnakkann og mannfjöldinn sleit okkur í sundur.

Ég sá hana aldrei aftur...

Story of my life.

...en bara til að vera viss henti ég 8x4 og fékk mér nýja tegund þegar ég kom heim eftir tónleikana.
SigReyonSaturday 30 August 2008 - 00:30:41
Read/Post Comment: 41

Go to page       >>  
News Categories

This site is powered by e107, which is released under the terms of the GNU GPL License. Furthermore, all images, text and other content on this site is subject to copyright law and may not be used without permission. All rights reserved, Thorstensen Inc. MSN - londonchurchill 'at' hotmail.com / myspace.com/yergiz
Sigurður Reynir Thorstensen - SigRey - S: 862-6878
Ekki taka neitt af því sem er á síðunni alvarlega!
Render time: 0.5980 second(s); 0.3377 of that for queries. Memory Usage: 1,944kb